Advanced Botanical Kinetics Plumping Milky Lotion 50ml
9.715 kr
Þessi vara er uppseld eins og er
Advanced Botanical Kinetics™ Plumping Milky Lotion
Létt lotion sem gefur húðinni fyllingu og eykur ljóma samstundis.
LAUST VIÐ
Gerviilm, sílikon, þalöt, súlföt eða natríum lauryl-/laureth-súlfat (SLS/SLES), parabena, jarðolíu (mineral oil), súlfít, petrolatum, formaldehýð og formaldehýðgjafa, paraffín, gerviliti, triclocarban og triclosan.
Fyllt og ljómandi húð á augabragði.
Plöntubundið phytotech vegan kollagen í þessari mjólkurkenndu lotion gefur húðinni fyllingu með aukinni rakagjöf, á meðan Vegan Peptide Complex hjálpar til við að slétta sýnilega fínar línur og hrukkur.
100% upplifðu bætingu á raka fyrir sýnilega fyllri húð* eftir aðeins eina notkun.
Eftir eina notkun:
-
100% upplifðu bætingu á raka fyrir sýnilega fyllri húð¹
-
96% sáu sýnilega minnkun á roða²
-
86% sáu strax bætingu á ljóma (prismatic radiance)³
-
Bættur styrkur húðvarnar (skin barrier)
-
Verndar gegn bláu ljósi, oxunarálagi og skaðlegum umhverfisáhrifum
Eftir 4 vikur:
-
Sýnileg bæting á útliti lína og hrukka og hjálpar til við að lyfta og þétta húðina sýnilega⁴
HENTAR FYRIR
Allar húðgerðir, þar á meðal viðkvæma húð.
ILMUR
Sítrus- og blómailmur með ilmkjarnaolíum úr geranium, appelsínu og lavender.
ANNAÐ SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA
-
Vegan
-
Prófað af húðlæknum
-
Stíflar ekki húðholur (non-comedogenic)
-
Leaping Bunny samþykkt
-
97% af innihaldsefnum eru af náttúrulegum uppruna**
NOTKUN
Berið jafnt á andlit, háls og bringusvæði (décolleté) morgna og kvölds.
ENDURNÝJANDI HÚÐRÚTÍNA
SKREF 01. HREINSA
Advanced Botanical Kinetics™ Micro-Purifying Cleansing Mousse
Krem-í-froðu hreinsir sem fjarlægir farða, olíu og óhreinindi.
SKREF 02. UNDIRBÚA
Advanced Botanical Kinetics™ Revitalizing Essence Lotion
Rakagefandi essence-lotion sem sléttir húðina og fínstillir húðholur.
SKREF 03. MEÐHÖNDLA
Advanced Botanical Kinetics™ Vitality Serum
Öflugt serum sem dregur verulega úr sýnileika fínna lína og hrukka.
SKREF 04. RAKA
Advanced Botanical Kinetics™ Plumping Milky Lotion
Létt lotion sem gefur húðinni fyllingu og eykur ljóma samstundis.
Advanced Botanical Kinetics™ Plumping Creme
Fjölvirkt krem sem gefur húðinni fyllingu, eykur stinnleika og dregur sýnilega úr hrukkum.
RÁÐ OG TIPS FRÁ SÉRFRÆÐINGI
Advanced Botanical Kinetics™ Plumping Milky Lotion frásogast tvöfalt hraðar þegar hún er borin á eftir Advanced Botanical Kinetics™ Essence Lotion.*
„Plumping Milky Lotion er ein af mínum uppáhalds leiðum til að auka raka án þess að húðin verði þung. Hún gefur húðinni fyllingu, róar sýnilegan roða og skilur eftir heilbrigðan, ferskan og ljómandi áferð (dewy finish). Ég mæli oft með henni fyrir þá sem vilja bæði raka og róandi áhrif í einu einföldu skrefi – og hún er mitt persónulega uppáhald þar sem ég er sjálf með mjög viðkvæma og auðroðnandi húð.“
— Shelley Bawiec, alþjóðlegur spa-kennari hjá Aveda og húðfræðingur
* In vitro próf sýndi tvöfalt hraðara frásog á Advanced Botanical Kinetics™ Plumping Milky Lotion þegar hún var borin á eftir Revitalizing Essence Lotion, samanborið við essence-lotion eina og sér.
Helstu innihaldsefni
Phytotech vegan kollagen
Gefur húðinni fyllingu með aukinni rakagjöf. Með þróaðri plöntutækni eru aðlögunarhæfar plöntur ræktaðar í lóðréttum ræktunarkerfum og fá „leiðbeiningar“ til að mynda kollagen af gerð 1 sem er líffræðilega samsvarandi hluta af kollageni húðarinnar.
Þegar plönturnar taka þetta upp mynda þær brot af hreinu og virku vegan kollageni í laufum sínum. Þessi brot eru síðan varlega einangruð og síuð til notkunar í Advanced Botanical Kinetics™ formúlunum. Afgangur plöntuefnis er umbreyttur í næringarríkan jarðgerðarúrgang.
Helstu kostir lóðréttrar ræktunar:
-
engin notkun varnarefna
-
orkusparandi lýsing
-
endurnýting vatns og jarðvegs til staðbundinnar ræktunar
Vegan Peptide Complex
Örvar lífsþrótt húðarinnar og hjálpar til við að snúa við sýnilegum áhrifum kollagentaps með því að þétta húðina og draga úr útliti fínna lína og hrukka.
Kinetic Energy Infusion
Virkjar „orkuflæði“ húðarinnar með því að auka upptöku súrefnis og vatns og magnar náttúrulega orku húðarinnar fyrir aukinn ljóma.
Unnið úr orkugefandi gerjunarefni, níasínamíði og náttúrulegu* koffíni.
*Samkvæmt ISO 16128, unnið úr plöntum og/eða vatni.
Lakkrísrótarútdráttur, „grænt“ koffín og þörungaútdráttur
Hjálpa til við að róa húðina.
Andoxunarblanda
E-vítamín, engiferrótarútdráttur og hrísgrjónaklí hjálpa til við að vernda húðina gegn bláu ljósi, oxunarálagi og skaðlegum umhverfisáhrifum.
C-vítamín
Vinnur í samverkandi áhrifum með Vegan Peptide Complex til að draga úr sýnilegum einkennum kollagentaps og stuðlar að sléttara og jafnara húðútliti.
Innihaldslýsing (INCI)
Water/Aqua/Eau, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil, C9-12 Alkane, Butylene Glycol, Glycerin, Polyglyceryl-3 Methylglucose Distearate, Squalane, Collagen Amino Acids, Yeast Extract/Faex/Extrait De Levure, Niacinamide, Caffeine, Glycine Soja (Soybean) Seed Extract, Iris Florentina Root Extract, Laminaria Digitata Extract, Punica Granatum (Pomegranate) Sterols, Porphyridium Cruentum Extract, Sodium Hyaluronate, Ethylhexylglycerin, Oryzanol, Ceramide NP, Sorbitol, Coco-Caprylate/Caprate, Ascorbyl Glucoside, Dipotassium Glycyrrhizate, Acetyl Hexapeptide-8, Palmitoyl Tripeptide-1, Palmitoyl Tetrapeptide-7, Glycine Soja (Soybean) Oil, Sucrose, Acrylates/C10-30 Alkyl Acrylate Crosspolymer, Polysorbate 20, Hydrogenated Lecithin, Sodium Hydroxide, Citric Acid, Dicaprylyl Carbonate, Pentylene Glycol, Ammonium Acryloyldimethyltaurate/VP Copolymer, Xanthan Gum, Fragrance (Parfum), Rose Flower Oil/Extract, Jasmine Oil/Extract, Zingiber Officinale (Ginger) Root Extract, Linalool, Limonene, Citronellol, Citral, Hydroxycitronellal, Linalyl Acetate, Geraniol, Pinene, Beta-Caryophyllene, Carbomer, Tocopherol, Sodium Citrate, Phenoxyethanol, Sodium Benzoate, Potassium Sorbate.
Aveda Pure-Fume™ ilmblanda með greipaldini, geranium, mandarínu og öðrum hreinum blóma- og plöntuessensum.
<ILN55202>
Athugið að innihaldslistar geta breyst. Vinsamlegast skoðið innihaldslýsinguna á umbúðum vörunnar sem þú færð til að sjá nýjustu upplýsingar.
UMBÚÐIR og FRAMLEIÐSLA
Flaskan er úr 20% endurunnu gleri, pumpan úr 70% endurunnu plasti og ytri umbúðir úr endurunnum trefjum.
Vinsamlegast fjarlægið pumpuna og endurvinnið flöskuna.
Framleiðslan er knúin raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum, þar á meðal blöndu af sólar- og vindorku á staðnum.
Klínískar prófanir
* Klínísk prófun á 27 konum eftir eina notkun.
¹ Klínísk prófun á 27 konum eftir eina notkun.
² Eftir formeðferðartímabil; klínísk prófun á 24 konum, mælt í 150 mínútur, samanborið við ómeðhöndlaða húð.
³ Klínísk prófun á 31 konu eftir eina notkun.
⁴ Klínísk prófun á 31 konu eftir 4 vikna notkun, tvisvar á dag.
**Samkvæmt ISO 16128 staðlinum, unnið úr plöntum, steinefnum sem ekki eru jarðefnaeldsneyti og/eða vatni.