Aveda framleiðir eigin vörur í eigin verksmiðju sem er rekin á 100% endurnýjanlegri orku, fyrst allra hár- og snyrtivöruframleiðanda. Aveda var einnig fyrsta fyrirtækið til þess að nota 100% endurunnar umbúðir undir vörur sínar. Aveda er stöðugt að setja markið hærra þegar kemur að sjálfbærni og árið 2020 lauk skráningu einna stærstu bálkakeðju heims en þá lauk skráningu á ferli Vanillu frá akri til notkunnar fyrir Aveda vörur í verksmiðju félagsins.
Aveda leggur sitt af mörkum til nær og fjær samfélaga. Eitt af þeim málefnum sem Aveda styður rausnarlega er að bæta aðgengi barna að hreinu drykkjar vatni. Á ári hverju höldum við Jarðarmánuð hátíðlegan í apríl og frá árinu 1999 höfum við safnað 8.7 milljörðum króna fyrir áríðandi málefni.Við höfum fært yfir 1.4 milljónum mans aðgengi að hreinu drykkjarvatni.
Aveda starfar í yfir 45 löndum og vinnur með hárgreiðslu- og snyrtistofum, sérvöruverslunum og sérhæfðum snyrtivörudeildum verslana.
]]>Sögusögn 1: Ef þú vilt að hárið vaxi hraðar farðu þá í klippingu.
Staðreynd: Já – hárið vex hraðar ef það er snyrt reglulega og það verður líka heilbrigðara fyrir vikið. Hins vegar getur reglulega þýtt mismunandi hluti fyrir mismunandi einstaklinga. Hugsi fólk vel um hárið nægir því að klippa hárið 3-4 sinnum á ári. Sé hárið ílla farið þarf að klippa í burtu skemmdirnar áður en hægt er að byggja upp fallegt heilbrigt hár.
Sögusögn 2: Því meira sem er notað af næringu því betra verður hárið.
Staðreynd: Nei ekki rétt. Það er mikilvægara að nota réttu næringuna en mikið af næringu sem passar kannski ekkert sérstaklega fyrir hárið þitt. Spurðu fagmanninn hvaða næring hentar þínu hári.
Sögusögn 3: Hárið þitt venst vörunum sem þú notar og þær hætta að virka fyrir hárið þitt.
Staðreynd: Nei það er rangt. Hárið getur síkkar, þykknað og áferðin getur breyst. Hárið vex stöðugt. Vörurnar sem þú notar strax eftir klippingu geta síður hentað hárinu þínu þegar það er orðið til dæmis 10cm lengra. Þá geta mismunandi tímabil í lífi einstaklinga kallað eftir mismunandi vörum, til dæmis þegar kona er ólett, þá er algent að þéttileiki hársins breytist, það getur bæði orðið þynnra eða þykkara. Þess vegna er gott að skipta um vörur eftir ástandi hársins hverju sinni – ekki það að vörurnar hætti að virka af því að hárið þitt hafi vanist þeim.
Sögusögn 4: Ef þú ert á leið á hárgreiðslustofu átt þú að mæta með skítugt hár.
Staðreynd: NEI, alls ekki. Það er best ef þú mætir með hárið mótað í þeim stíl sem þú kýst að hafa það. Þannig getur fagmaðurinn hjálpað þér að fá stílinn sem þú sækist eftir, bæði með því að klippa hárið og með því að finna með þér réttu vörurnar.
Sögusögn 5: Það er best að sleppa því að nota hárnæringu ef hárið er fíngert eða þunnt.
Staðreynd: Já og nei. Það er mikill munur á hárnæringum. Sumar næringar geta þyngt hárið, en sumar næringar eru sérstaklega búnar til fyrir fíngert eða þunnt hár. Fólk með fíngert eða þunnt hár á að nota næringu, það getur byrjað á því að setja það frá miðju hársins til enda, forðast hársvörðinn. Fólk sem er með stutt, fíngert eða þunnt hár geta notað næringu sjaldnar en allir ættu að nota næringu. Það þarf bara að vera rétta næringin fyrir hárið þitt.
]]>Ef maturinn þinn er ekki járnríkur er hægt að bæta úr því. Við spurðum Dr. Monu Vand ráða, hún er Lyfjafræðingur og þekktur áhrifavaldur þegar kemur að heilsu og heilbrigðum lífsstíl. Hér er uppskrift af járnríkum morgunmat.
Græn morgun skál.
„Ég elska þessa uppskrift því hún er stútfull af næringu. Ég vil byrja daginn á því að fá næringaríkan morgunmat sem nærir öll kerfi líkama og hugar, þessi skál er fullkomin byrjun á deginum. Hún er hlaðin af járni eða um 13.mg – 21mg af járni“ segir Mona.
Innihald:
- 1 bolli af ferskum eða frosnum berjum (veldu lífrænt þegar það er kostur, notaðu jarðaber/hindber fyrir grænan smoothie, dekkri ber ef þú vilt hafa hann fjólubláan.
- 2 handylli af spínati(veldu lífrænt)
- 1 lítil lúka af grænkáli (veldu lífrænt // fjarlægja stóra stilka)
- 1½ - 2 bolli af ósætri möndlumjólk
- ½ bolli af bókhveiti
- ¼ - ½ bolli af lífrænt ræktuðum höfrum
Leiðbeiningar:
1. Settu hafrana í blandara með smá af möndlumjólkinni, blandaðu þangað til þú sérð varla hafrana. Þú getur bæði notað hráa eða eldaða hafra, fer eftir þínum smekk.
2. Settu restina af innihaldsefninu í blandarann ásamt nokkrum klökum og blandaðu þangað til áferðin verður kremkennd.
3. Smakkaðu og bættu við hráefni eftir smekk, smoothi-inn verður grænni ef þú bætir við spínati eða grænkáli, að bæta við möndlumjólk gerir hann rjómakenndari.
4. Fyrir grænni smoothie er tilvalið að nota jarðaber eða hindber. Bláber eða brómber gera drykkinn dekkri.
5. Skiptu í tvær skálar og settu ferska ávexti ofan á.
6. Hægt er að geyma afganga í ísskápnum.
Yawanawa nota litinn til þess að mála andlit sitt og líkama. Einstakir eiginleikar litsins gera hann tilvalinn til snyrtivöruframleiðslu en hefbundnir snyrtivöruframleiðendur nota blóð úr lús til þess að fá rauðan lit. Stofnandi Aveda hitti höfðingja Yawanawa fyrir um 30 árum síðan. Síðan þá hefur Aveda unnið með ættbálknum og þróað samband sitt við hann. Sú samvinna gekk vel en svo skiptist ættbálkurinn í tvær fylkingar og uppbyggingin hófst að nýju og stendur enn.
Saga Yawanawa
Samfélag þeirra átti undir högg að sækja seint á 19 öldinni vegna ágangs gúmítrjáa ræktenda á land þeirra. Fólkið var hneppt í ánauð og urðu þrælar gúmítrjáræktenda. Allt var gert til þess að þurrka út menningu Yawanawa og fólkið þurfti að þola harðræði kynslóð eftir kynslóð. Alda gamlar hefðir áttu undir högg að sækja. Þegar eftirspurn eftir gúmíi drógst saman um miðbik 20. aldarinnar voru lífshættir Yawanawa fólksins mikið breyttir, öldum saman hafði fólkið ræktað landið og veitt sér til matar. Fjöldi fólks hafði farið til borga að leita sér að betra lífsviðurværi.
Fyrstu merki þess að jákvæðar breytingar væru í vændum var árið 1984. Ungur maður að nafni Biraci Brazil var sendur til mennta í borginni Rio Branco. Þar uppgötvaði hann lög sem tryggja ýmis réttindi frumbyggja. Biraci kom til baka vopnaður skjali þess efnis að réttur Yawanawa til yfirráða yfir eigin landi væri óumdeilanlegur. Biraci var kosinn höfðingi Yawanawa ættbálksins árið 1987 og barðist hann fyrir sjálfstæði síns fólks og gegn yfirráðum gímíiðnaðarins á landinu.
Yawanawa vildu auka sjálfstæði sitt og til þess var nauðsynlegt fyrir ættbálkinn að skapa tekjur óháðar gúmíiðnaðinum. Markmið þeirra var að endurreisa menningu sína og lífshætti.
Yawanawa og Aveda byggja upp samband.
Það var í þessu samhengi sem samband myndaðist milli Biraci og Horst Rechelbacher, stofnanda Aveda. Þeir hittust á fundi Sameinuðuþjóðanna um umhverfismál og þróun í Rio de Janeiro, sem fór fram í Brasilíu árið 1992.
Uruku litarefnið er unnið úr fræjum ávaxtar en Yawanawa hafa notað litarefnið öldum saman í sínu menningarlífi. Þeir mála húð sína við sérstakar athafnir með minstri sem hefur mikið gildi fyrir ættbállkinn. Sérhvert mynstur er einstakt og hver einstaklingur á sitt eigið mynstur. Þetta einstaka hráefni dró Aveda að Yawanawa ættbálknum.
Annato litarefni er ódýrt litarefni sem er notað í mat. Það er ræktað víða í hitabeltinu. Aveda kaus að vinna með Yawanawa ættbálknum vegna skuldbindingar okkar að kaupa einungis hráefni sem fæst með ábyrgum búskap og til þess að vernda samfélög frumbyggja, þekkingu þeirra á plöntum og á eiginleikum þeirra.
Það er ekki auðvelt að þróa aðferðir frá einkanotum Yawanawa á Uruku til uppskeru sem hægt væri að selja til að afla tekna fyrir ættbálkinn. Það tók yfir 10 ár að þróa aðferðir til þess að ná árangri. Á þessum tíma tók nýr höfðingi við leiðtogahlutverkinu, hann heitir Tashka Yawanawa. Á fyrsta árum nýrrar aldar tóku lífsgæði Yawanawa mikinn kipp. Þeir hafa endurheimt menningu sína, byggt heilsugæslu með aðstoð Aveda og tryggt mataröryggi sitt. Árið 2008 skipti ættbálkurinn sér í tvær fylkingar undir leiðsögn Biraci og Tashka. Aveda nýtir rauðalitarefnið í fjölda vara sem njóta mikilla vinsælda.
Ávinningur og áskoranir í sambandinu.
Yawanawa hafa náð góðum árangri í að endurheimta menningu sína og lífsstíl með stuðningi Aveda. Þeir gáfu út sína fyrstu bók á sínu eigin tungumáli ásamt því að framleiða myndband sem heitir „Yawa“ þar sem þeir sýna og segja frá menningu sinni.
Með tekjum sínum og stuðningi Aveda hefur ættbálkurinn getað helgað landsvæði undir uruku ræktun ásamt því hafa þeir keypt tæki og tól til þess að fullvinna afurðina og hækka þannig tekjur sínar. Með fjármunum frá Jarðarmánuði Aveda hefur verið hægt að byggja skóla og heilsugæslu og grafið vatnsbrunna til að bæta aðgengi að hreinu drykkjarvatni. Þá hefur Aveda fjármagnað kaup á bátavélum sem ganga fyrir bio-díseli.
Ávinningur Aveda á samstarfinu er mikill, þar á meðal hefur myndast þekking á því hvernig best sé að vinna með frumbyggjum landsvæða þaðan sem Aveda fær hráefni sitt frá. Aveda hefur lært mikið um menningu frumbyggja með þátttöku sinni í verkefnum með Sameinuðuþjóðunum. Það hefur verið stórkostlegt að fylgjast með Yawanawa ættbálknum styrkjast og verða sjálfstæður. Við höfum unnið með þeim á þeirra forsendum. Við höfum hagnast á samstarfinu með því að læra af þeim listræna nálgun þeirra á notkun á litarefnum. Það hefur skilað sér í vörum sem við höfum búið til og líka til umbúða vara okkar.
Áskoranir hafa verið margar og ekki hefur allt gegnið upp.
Það var erfitt að breyta aðferðum við ræktun á Uruku, farið var úr því að týna vilta ávexti í það að rækja þá í hólfum á landi. Það tók 10 ár að komast þangð og það þurfti að fá fleiri aðila að verkefninu til þess að það tækist.
Markmiðið hefur alltaf verið að Yawanawa gætu orðið sjálfstæðir og selt til fleiri aðila en það hefur ekki tekist – stærsta áskorunin er landfræðileg lega og fjarlægð frá mörkuðum. Aveda vill að fleiri aðilar kaupi litarefnið þannig að ættbálkurinn verði ekki háður einu fyrirtæki.
Þegar ættbálkurinn skiptist í tvær fylkingar stöðvaðist ræktun þeirra á uruku og önnur fylkingin er enn að vinna í því að byggja upp ræktun á uruku og hefur Aveda þurft að kaupa uruku fræjin frá fleiri ræktendum vegna þess.
Sambandið heldur áfram að þróast og ber vitni þess að við viljum vinna með samfélögum frumbyggja og vernda líffræðilegan fjölbreytileika Amazon regnskógarins.
Horft til framtíðar.
Aveda styrkir enn þróun á nýju ræktunarlandi fyrir Uruku rætkun. Aveda greiðir samfélaginu fyrir notkun á öllu efni sem tengist Yawanawa ættbálknum og vinnur með báðum fylkingunum. Þeirra markmið er fullkomið fjárhagslegt sjálfstæði og við vinnum með þeim að því markmiði.
]]>The Breast Cancer Research Fondation leitar lækninga með grimmdarlausum vísindarannsóknum. Samtökin voru stofnuð árið 1992 og eru einu samtökin þar sem allir fjármunir renna til klínískra og erfða rannsókna á rannsóknarstofum sem eru víða í Bandaríkjunum.
Við styrkjum grimmdarlausar rannsóknir.
Aveda gefur fjármuni til þess að fjármagna cruelty-free rannsóknir sem rannsaka tengsl umhverfisþátta og brjóstakrabbameins. Þar eru skoðuð tengsl óæskilega efna í nærumhverfis og mengunar við brjóstakrabbamein. Undanfarin ár hefur fjármununum verið veitt til Columbia University í New York en þar eru rannsökuð tengsl umhverfisþátta og erfða við brjóstakrabbamein. Við munum áfram styðja þær rannsóknina og álíka rannsóknir.
Frá árinu 2001 höfum við safnað 820.000.000 kr. Það eru starfsfólk Aveda, hár- og snyrtistofa sem hafa safnað þessum fjármunum með því að selja handáburð í október á ári hverju.
Heilsuráð
Einfaldar lífsstílsbreytingar eins og reglubundnar heimsóknir til læknis geta gert gæfumuninn í báráttu gegn brjóstakrabbameinin. Ef krabbamein greinist á byrjunarstigi og er staðbundið læknast 98% kvenna sem fá það.
Þekktu líkama þinn. Skoðaðu eigin brjóst reglulega, ef þú finnur eitthvað óeðlilegt leitaðu strax til læknis.
Farðu í skimun. Byrjaðu að fara í skimum frá 20 ára aldri. Farðu reglulega og oftar ef þú ert í áhættuhópi.
Hugaðu að líkamshreysti. Vertu dugleg að borða grænmeti og ávexti. Trefjar, andoxunarefni og önnur heilbrigð næring hjálpar. Viðhaltu heilbrigði líkamsþyngd. Óheilbrigð þyngd eykur líkur á brjóstakrabbameini. Ekki reykja – ef þú reykir hættu. Stundaðu heilbrigða hreyfinu oft og reglulega. Krabbameinsfélag Bandaríkjanna mælir með 45-60 mínútna hreifingu 5 sinum í viku.
]]>Aveda er grimmdarlaust/cruelty-free vörumerki. Við gerum ekki tilraunir á dýrum og við biðjum ekki aðra um að gera tilraunir á dýrum fyrir okkur. Vörur okkar eru prófaðar af fólki. Það er tímafrekara og dýrara en við teljum það vera þess virði.
Það skiptir okkur miklu að vera cruelty-free og hefur verið þýðingamikill hluti af starfssemi okkar allt frá 1978. Það er hluti af markmiði okkar að gæta umhverfis okkar og allra þeirra lífvera sem eru partur af því.
Við erum leiðandi í okkar iðnaði og það hefur alltaf verið markmið okkar að vera leiðandi og ábyrg í okkar iðnaði jafnt sem og í heiminum. Okkar skuldbinding um dýravelferð og verndun heimkynna þeirra nær víða um heiminn.
Hvað höfum við gert:
Árið 1989 varð Aveda fyrsta fyrirtækið til þess að skrifa undir Ceres sáttmálan sem stendur meðal annars fyrir ábyrgð fyrirtækja gagnvart öllu lífi á jörðinni.
Aveda vörurnar eru 100% vegan.
Við framleiðum vörur okkar í eigin verksmiðju í Blaine, Minnesota. Landsvæðið þar sem verksmiðja okkar stendur er vottað vistkerfi viltra dýra. Aveda vann með National Wildlife Federation til þess að það gat orðið að veruleika.
Við unnum með Audubon Minnesota (samtök sem vinna að velferð fugla) til þess að sjá til þess að fuglar ættu auðvelt með að búa til hreiður á landsvæðinu okkar. Til hafa orðið ýmis svæði á landareigninni þar sem mismunandi fuglategundir eiga auðvelt með að verpa eggjum sýnum, þar má til dæmis nefna Viðarendur og Bláfugla.
Við höfum unnið með Audubon frá árinu 2007 og eitt af þeim verkefnum er að bæta vatnsgæði efri hluta Mississippi árinnar og bæta þannig líf fugla og annara viltra dýra sem sækja í ánna.
Frá 2010 höfum við safnað gömlum farsímum og gefið til endurvinnsluverkefna sem fjármagna Goualougo Triangle Ape Project í Kongo.
Við höfum gefið fjármuni til verkefna tengda dýravelferð þegar náttúrhamfarir hafa dunið yfir. Þar má nefna vegna fellibylsins Katrina og olíu leikans í Mexíkóflóa.
Á síðasta áratug höfum við gefið yfir 1 milljarð króna til ýmissa grasrótarsamtaka sem vinna að verndun dýra og plantna í útrýmingarhættu.
Við styðjum og söfnuðum yfir 500.000 undirskriftum vegna Endangered Species Act árið 2006 og hvöttum þannig þjóðarleiðtoga til þess að samþykkja tillöguna með tilstuðlan Sameinuðuþjóðanna.
Við stundum býflugna-vinsamlega garðyrkju á landareign okkar þannig að þær hafi aðgengi að hreinni fæðu og vatni.
Við kaupum lokta pappír frá Nepal en með kaupum okkar hefur tekist að vernda 42.000 ekrur af skógum sem er heimkynni yfir 21 dýrategunda í útrýmingarhættu. Þar á meðal eru úlfar og snjó hlébarðar.
]]>Aveda heldur fast í hefðir Ayurvedic og hefur einsett sér að nota lífræn innihaldsefni. Þessi vegferð hefur leitt af sér annað samstarf en það er við indverskt fyrirtæki sem heitir Nisarga.
Nisarga þýðir náttúra á Sanskít – Nisarga ræktar Ayurvedic plöntur með lífrænum búskap. Aveda kaupir lífrænt ræktað túrmerik og amla sem er notað í Invati vörurnar af Nisarga.
Nisarga vinnur á umhverfisvænan hátt og engin óæskileg efni falla til við þeirra búskap. Aðferðir þeirra skila plöntum með meiri virkni en gengur og gerist.
Nisarga kennir bændum að vinna að lífrænum búskap þannig að enginn kemískur ábyrður er notaður við ræktunina. Alls hafa yfir 35.000 bændur sótt nám til þeirra og breytt búskap sínum yfir í lífrænan búskap. Nisarga borgar sjálft kostnaðinn þannig að bændurnir geti fengið lífræna vottun á búskap sinn. Þannig hefur þeim tekist að fá þennan gríðarlega fjölda af bændum til þess að stunda lífrænan búskap en það væri þeim ómuglegt annars vegna kostnaðar.
]]>Arfleið Horst Rechelbacher (11. nóvember 1941 - 15. febrúar 2014) nær langt útfyrir stofnun Aveda, hann var frumkvöðull í heilnæmri fegurð, frumkvöðull í því að taka ábyrgð á umhverfismálum. Ástríða hans varð af hnattrænni hreyfingu sem leitar leiða til að öðlast jafnvægi og samhljóm í því hvernig við lifum og búum.
Horst fæddist árið 1941, móðir hans var grasalæknir og faðir hans var skósmiður. Andspænis æskuheimili hans var hárgreiðslustofa og þar byrjaði hann að vinna 14 ára gamall. „Ég var ekki besti nemandinn en ég hafði ástríðu fyrir því sem ég var að gera“ sagði hann. Horst var með einstaka hæfileika og þegar hann var 17 starfaði hann á bestu hárgreiðslustofunni í Róm. Meðal viðskiptavina hans voru margar stórstjörnur. Þegar Horst var 20 ára vann hann titilinn hárgreiðslumaður Evrópu og með þeim titli fylgdu sýningahöld og ferðalög um alla Evrópu og Bandaríkin. Horst hafði sannarlega fundið köllun sína.
Horst lenti í slæmu bílslysi árið 1963, þá var hann nýbúinn að vinna keppni í Minneapolis. Þar dvaldi hann á spítala til þess jafna sig eftir bílslysið. Horst ákvað að búa í Minneapolis og opnaði fyrstu hárgreiðslustofuna sína þar. Þeim fjölgaði hratt og vann hann myrkrana á milli. Að lokum vann hann yfir sig en náði aftur kröftum sínum með því að breyta um lífsstíl. Hann fór að stunda jóga og hugleiðslu og mamma hans, grasalæknirinn, bjó til heilsupakka sem virkuðu fyrir hann. Eftir heimsókn til Indlands árið 1970 innleiddi Horst Ayurveda í líf sitt, bæði sitt persónulega líf ásamt því að innleiða það í fyrirtækið sitt. Hann trúði því að fegurð einstaklingsins væri tengd við fegurð heimsins, umhverfis okkar. Hér mótuðust hugmyndir hans sem myndu umbylta hár- og snyrtivörugeiranum. „Við erum jörðin, við erum jarðvegurinn, við erum vatnið, við erum allt. Ræktaðu lífrænt ef þú getur. Vertu bóndi. Þú getur vaxið inn í þínu eigin húsi. Ræktaðu piparmyntu og búðu til þitt eigið te. Fagnaðu lífinu.“
Horst fékk innblástur til þess að búa til Aveda þegar hann var staddur á Indlandi. Hann lærði hvernig hægt væri að öðlast orku til þess að efla jafnvægi hugans, líkamans og andans – allt ætti að leiða til þess að gesturinn á hárgreiðslustofum hans næði sínum markmiðum, bæði þjónusta og vörurnar sem gesturinn notaði þegar heim var komið voru partur af heild. Horst hitti Shiv Nath Tandon, sem síðar varð fyrsti starfsmaður Aveda, saman bjuggu þeir til fyrstu vöru Aveda – Clove sjampóið. Með þeim í teyminu voru tveir doktorar í Ayurveda, hjónin Vinod og Kusum Upadhyay. Öll starfa þau enn hjá Aveda.
Aveda varð til árið 1978 og tilgangurinn var að færa fagfólki í hár- og snyrtingu vörur og gestum þeirra vörur sem væru byggðar á lífrænum grunni og myndi því fara betur með fagfólkið, gesti þess, umhverfið og samfélagið. Sýn Horst reyndist langt á undan samtímanum. Þrátt fyrir að Horst sé ekki lengur á lífi þá skildi hann eftir sig einstaka arfleið sem hefur mótað heilan iðnað. Horst er gjarnan nefndur afi grænu byltingarinar þegar kemur að hár- og snyrtivörum.
„Sérhver dagur gefur okkur tækifæri til þess að skapa gáru jákvæðni í heiminum, jafnvel einföldustu valkostir okkar geta haft mikil áhrif á umhverfið, hvað við borðum, í hverju við erum, hvað við notum á líkamann og hvað við notum inni á heimilum okkar, allt hefur þetta áhrif sem ná langt útfyrir okkar nærumhverfi“ sagði Hrost.
Einstak líf leiðtoga
1978 – Horst stofnar Aveda með það að markmið að búa til fegurð með vellíðan.
1982 – Fyrsti Aveda skólinn opnar í Minneapolis, Aveda Institues eru skólar fyrir fagfólk í hári, snyrtingu og nuddi.
1987 – Horst gefur út bókina „Rejuvenation: A Wellness Guide for Women and Men“
1989 – Horst skrifar undir Valdez/Ceres sáttmálann fyrir hönd Aveda. Aveda verður þannig fyrsta fyrirtækið til að gera það. Valdez/Ceres sáttmálinn er undanfari Parísarsamkomulagsins þar sem barist er gegn loftlagshlýnun.
1993 – Horst semur um vörudreifingu Aveda á Íslandi. Þekking Íslendinga á grasafræðum er þekkt langt út fyrir landssteinana.
1997 – Horst selur Aveda til Estée Lauder og Aveda vex hratt og Aveda starfar í yfir 40 löndum og yfir 9000 hárgreiðslustofur vinna með og selja Aveda vörurnar.
1999 – Horst gefur út „Aveda Rituals: A Daily Gudie to Natural Health and Beuty“
2004 – Horst fær virtustu verðlaun snyrtivörugeirans fyrir starf sitt í geiranum.
2005 – Aveda verður fysta kolefnishlutlausa fyrirtæki Íslands. Það var gert í samstarfi með Skógræktarfélagi Íslands.
2005 og 1995 – Vanity Fair tímaritið velur Horst "Helsta umhverfissinna Bandaríkjanna."
2007 – Horst fær Rachel Carson verðlaunin fyrir þrotlaust starf sitt að siðferði í umhverfismálum
2007 – Horst fær verðlaun frá The Spa & Salon Proffessional Association fyrir framlag sitt í Hár- og snyrtivörugeiranum.
2009 – Forseti Austurríkis verðlaunar Horst með „Decoration of Honour in Gold Services to the Republic of Austria“ en þau verðlaun eru veitt fyrir að skara frammúr í viðskiptum.
2013 – The International Spa Association (ISPA) verðlaunar Horst fyrir framúrskarandi leiðtogahæfni.
]]>